Nennti ekki að elda kvöldmat bara handa mér því Benjamín fór extra snemma að sofa áðan. Áhvað að fá mér bara eina gamaldags rónasteik eitthvað einfalt og fljótlegt. Aldeilis ekki sko, byrjaði á því að brenna samlokuna öðru megin svo að ég skipti bara um brauð þeim megin og hélt ótauð áfram. Síðan brenndi ég samlokuna hinumegin svo að þegar hún var tilbúin var ég búin að skipta um brauð báðu megin. Ekki nóg með það heldur brenndi ég mig líka tvisvar, ótrúlega vittlaus. Ég nota bene brenni mig ALDREI þegar ég er að elda og ég man ekki hvenar ég brenndi síðast mat. Aldeilis spark í rassinn um að ég hefði bara átt að leggja það á mig að elda eitthvað heimilislegra og kannski hollara. . .