Ég fór í bankann í dag í vinnunni minni og þar sem að
gjaldkerarnir eru allir hver ofan í öðrum þá hreinlega kemst maður
ekki hjá því að heyra það sem fram fer við hliðina á manni.
Þar var semsagt stelpa á svipuðum aldri og ég og ég er nokkuð viss
um að hún hefur heyrt talað um það sem við köllum internetið og þar
af leiðandi líka heimabanka. En nei þarna var hún með alla
reikningana sína að spurja gjaldkeran hvort hún væri búin að borga
þennan eða hinn. Rétt upp hönd sem fá ekki einu sinni senda
reikninga heim til sín lengur heldur bara ganga frá öllu
raffænt. Já þetta var semsagt flashback dagsins í
dag.
Er farið að styttast ótrúlega mikið þangað til við
förum út í sólina, ég er meira að segja aðeins farin að pakka niður
í huganum. Ég er alltaf svo spennt að pakka niður þegar ég er
að fara eitthvað. Vildi bara að það væri jafn gaman að ganga
frá þegar maður kemur heim. Fleira skemtilegt, í dag er
bara vika þangað til Sigvaldinn minn kemur heim og verður
heima í alveg 7 eða 8 daga. Ekkert nema sólskin og
blómstur.