My God, myndaskapurinn bara alveg að fara með mann í dag, búin að taka til, brjóta saman þvott, elda og éta kvöldlmat, gera bílskúrinn ógó fínan og læra helling. Geri aðrir betur. Benjamín var ótrúlega duglegur að hjálpa mér í skúrnum, alltaf þegar ég var að bera eitthvað þungt þá tók hann klósettpappír pakkningu og rogaðist með hana á eftir mér með þvílíkum hljóðum. Hann er svo mikið rassgat þessi kútur. Fyrsti dagurinn í Færeyjum var bara ágjætur hjá Sigvaldanum mínum, einhver bið samt í að þeir komist í húsið sem þeir eiga að vera í. Held að það sé mánuður þangað til það er tilbúið. Verst að hann hefur ekki nettengingu þangað til svo að það er ansi dýrt að tala saman fyrst hann kemt ekki á Skypeið.