|
|
21.11.2007 11:33:47 / pora
»
06.11.2007 18:30:14 / pora
Hundurinn komin í pössun ásamt húsinu og allt að verða
klárt
Játz mín er farin að hitta
sólina
»
04.11.2007 19:18:42 / pora
Nennti ekki að elda kvöldmat bara handa mér því Benjamín fór extra snemma að sofa áðan. Áhvað að fá mér bara eina gamaldags rónasteik eitthvað einfalt og fljótlegt. Aldeilis ekki sko, byrjaði á því að brenna samlokuna öðru megin svo að ég skipti bara um brauð þeim megin og hélt ótauð áfram. Síðan brenndi ég samlokuna hinumegin svo að þegar hún var tilbúin var ég búin að skipta um brauð báðu megin. Ekki nóg með það heldur brenndi ég mig líka tvisvar, ótrúlega vittlaus. Ég nota bene brenni mig ALDREI þegar ég er að elda og ég man ekki hvenar ég brenndi síðast mat. Aldeilis spark í rassinn um að ég hefði bara átt að leggja það á mig að elda eitthvað heimilislegra og kannski hollara. . .
»
02.11.2007 21:29:55 / pora
Hver kannast ekki við tilfinninguna þegar maður er að keyra og þarf svo allt í einu að hnerra!! Ekki gott mál, því maður þarf jú alltaf að loka augunum þegar maður hnerrar, vísindalega sannað að það er ekki hægt að hnerra með opin augun. En já semsagt þegar maður er að keyra er bara hreint ekki alltaf svo gott að hnerra. Alveg viss um að einhvern daginn á eftir að heyrast frétt sem hljómar eitthvað á þennan veg: Alvarlegt umferðaslys varð í dag, orsökin er rakin til hnerra ökumanns í fyrsta bíl. . . Held að aðal orsök þess að fuglar fljúga á rafmagnsstrengi sé einmitt líka hægt að rekja til hnerra. Fuglarnir að sjá línurnar væntanlega við venjulegar aðstæður því þeir tylla sér oft á þeim. Hlýtur að vera að aumingjans greyin hnerri á versta tíma og snöggsteiki sjálfa sig í framhaldi af því. Kannski karlpeningurinn geti notað þetta sem afsökun þegar þeir pissa út fyrir „Sorrý elskan, ég bara hnerraði akkurat þegar ég var að pissa“ Smá tilbending til þeirra sem eru hnerrgjarnir við þvaglát, vinsamlega fáið ykkur sæti þegar verið að skvetta. 
»
30.10.2007 20:27:58 / pora
Hmm. . . hvað skal segja þegar það er ekkert að segja
»
26.10.2007 12:29:22 / pora
Það er alveg að bresta á, já það er að koma helgi eina ferðina enn. Hvað varð eiginlega af vikunni spyr ég nú bara ?? Finnst tíminn bara hafa flogið áfram síðustu daga. Ekki vegna þess að Sigvaldi er farinn, heldur hef ég haft meira en nóg að gera. Gott að hafa eitthvað annað að gera á kvöldin en að sakna hans þegar hann er ekki hérna. Ættlum að fara á Hellu í kvöld og Benjamín verður hjá tengdó á morgun meðan ég og ma&pa förum í bæinn að versla af okkur rassgatið, betra að hafa kortakælinn með. Nei nei segi nú bara svona, ættla alveg að hafa rassinn minn með heim aftur haha. Nóg af bulli, góða helgi allir  Já og svo setti ég nokkrar nýjar myndir á síðuna hans Benjamín í gær, mín aðeins að reyna að bæta upp fyria myndaleysi sumarsins.
»
23.10.2007 21:11:24 / pora
My God, myndaskapurinn bara alveg að fara með mann í dag, búin að taka til, brjóta saman þvott, elda og éta kvöldlmat, gera bílskúrinn ógó fínan og læra helling. Geri aðrir betur. Benjamín var ótrúlega duglegur að hjálpa mér í skúrnum, alltaf þegar ég var að bera eitthvað þungt þá tók hann klósettpappír pakkningu og rogaðist með hana á eftir mér með þvílíkum hljóðum. Hann er svo mikið rassgat þessi kútur. Fyrsti dagurinn í Færeyjum var bara ágjætur hjá Sigvaldanum mínum, einhver bið samt í að þeir komist í húsið sem þeir eiga að vera í. Held að það sé mánuður þangað til það er tilbúið. Verst að hann hefur ekki nettengingu þangað til svo að það er ansi dýrt að tala saman fyrst hann kemt ekki á Skypeið.
»
22.10.2007 20:24:08 / pora
Vorum að koma heim úr bænum, Sigvaldi er núna á lofti einhverstaðar yfir ballarhafinu á leið til Færeyja. Ég á svo góðan yfirmann að hún leyfði mér að vera heima eftir hádegi í dag til þess að knúsa kallinn minn, enginn smá lúxus. Dunduðum okkur helling í húsinu okkar um helgina, eina sjáanlega er samt málninginn á herberginu hans Benjamíns. Þarf að fara á morgun og kaupa meiri málningu því að það þarf þar einsog annarsstaðar 3 til 4 umferðir til þess að hylgja ógeðslitinn sem var á veggnum. Ættlaði að vera duglega að læra núna en þar sem að það er ekki skil á næsta verkefni fyrr en 30. þá ættla ég bara að leyfa mér það að vera löt í kvöld, poppa popp og vera mær tærnar upp í loftið.
»
18.10.2007 21:08:27 / pora
Um daginn var Ísabella litla frænka í heimsókn hjá okkur. Hún var að horfa á teiknimynd, Benjamín var að leika sér á gólfinu og fór óvart fyrir sjónvarpið hjá henni. Þá segir hún "áttu ekki beysli ??" og ég bara ha !! var alveg viss um að ég væri að heyra eitthvað vittlaust. Nei nei þá vildi hún binda krakkann fastan úti í horni svo að hann væri ekki að fara fyrir sjónvarpið. Ég fór að spurja hana út í það hvernig henni hefði dottið þetta í hug og þá kom í ljós að krakkarnir á leikskólanum hennar eru bara settir í beysli ef þeir eru óþekkir. Er svona í alvörunni gert enþá ?? Hefði haldið að leikskólar í dag væru eitthvað örlítið lengra komnir í uppeldisfræðum en þetta.
»
16.10.2007 20:36:02 / pora
Já við vorum heima í dag því að litli kútur er með hita, óvenju mikið veikinda vesen þessa daganna en pabbinn er að koma heim á eftir svo að feðgarnir geta verið saman heima á morgun og ég kemst aftur í vinnuna mína. Hann var eitthvað eirðarlaus og lítill í sér svo að við smelltum í muffins og það var þvílík gleði. Plataði hann líka til að borða smá þó það hafi bara verið óhollusta. Ekki mikil lyst þegar maður er svona lasinn.
»
11.10.2007 21:50:33 / pora

Komnar nýjar myndir inn á Barnaland loksins en það er búið að breyta lykilorðinu og þið verðið bara að meila, smsa (8646968  eða hringja á mig til þess að fá að vita hvað það er. Held að það hafi fullt fullt af fólkið verið komið með aðgang sem hafði ekkert við hann að gera. Ekkert bannað að kíkja samt ég er bara að meina fólk sem ég kannast ekkert við, allir aðrir velkomnir 
»
09.10.2007 18:42:43 / pora
Ég fór í bankann í dag í vinnunni minni og þar sem að
gjaldkerarnir eru allir hver ofan í öðrum þá hreinlega kemst maður
ekki hjá því að heyra það sem fram fer við hliðina á manni.
Þar var semsagt stelpa á svipuðum aldri og ég og ég er nokkuð viss
um að hún hefur heyrt talað um það sem við köllum internetið og þar
af leiðandi líka heimabanka. En nei þarna var hún með alla
reikningana sína að spurja gjaldkeran hvort hún væri búin að borga
þennan eða hinn. Rétt upp hönd sem fá ekki einu sinni senda
reikninga heim til sín lengur heldur bara ganga frá öllu
raffænt. Já þetta var semsagt flashback dagsins í
dag.
Er farið að styttast ótrúlega mikið þangað til við
förum út í sólina, ég er meira að segja aðeins farin að pakka niður
í huganum. Ég er alltaf svo spennt að pakka niður þegar ég er
að fara eitthvað. Vildi bara að það væri jafn gaman að ganga
frá þegar maður kemur heim. Fleira skemtilegt, í dag er
bara vika þangað til Sigvaldinn minn kemur heim og verður
heima í alveg 7 eða 8 daga. Ekkert nema sólskin og
blómstur.
»
07.10.2007 21:41:37 / pora
Ættlaði að vera ógó duglega að læra heima hjá mér í gær en það gekk nú ekki betur en ekki neitt. Eydís og Veigar kíktu til okkar, alltaf gaman að hitta þau og svo hringdi Palli um 5 leitið og lokkaði okkur til sín með loforði um heimatilbúna pizzu. Já hann kann á systur sína. Voru sem sagt á Hellu í nótt og hjá ma og pa í dag. Má nú reindar alveg eiga það að ég er búin að vera dugleg í kvöld, bæði gera eitt og hálft verkefni og teikna upp baðherbergið okkar og enduhanna það alveg Þettu verður miklu flottara en til stóð. . . Ættla að finna útifötin hans Benjamíns til fyrir morgundaginn og setja vagninn í bílinn svo það verði ekkert stess í fyrramálið. Bið bara að heilsa
»
04.10.2007 18:14:25 / pora
Hvað er málið með fólk sem notar ekki stefnuljós þegar það er að keyra ?? Ekki einsog þetta sé eitthvað extra mikið álag á bílstjórann að þurfa að smella því á annað slagið. . . Finnst þetta alveg sérstaklega pirrandi þegar maður er að keyra í bænum og fólk skipir um akreinar án þess að vara mann við, en það allra vittlausasta af öllu er fólk sem setur stefnuljóið á um leið og það tekur beigjuna. Ég meina, ef stefnuljósið ætti að virka þannig þá væri það nú líklega bara beintengt við stýrið ekki satt ?? Já ég held það nú bara. 
»
02.10.2007 10:20:43 / pora
 Búið að vera nóg að gera hjá okkur um helgina, hef varla komið nálægt tölvunni. Það eru komnar höldur í eldhúsið mitt og ýmislegt fleira smálegt gert. Mamma og pabbi og Vigdís og Sæmundur komu í mat til okkar á sunnudagskvöldið, gaman að fá loksins fólk í mat hingað. Seinna um kvöldið þegar allir voru farnir þá fékk ég í fyrsta skiptið svona "ah ég á heima hérna tilfinningu" einsog ég hefði verið að merkja mér staðinn. Eftir matinn hjálpaði Sæmundur mér líka með tölvuna, reddaði mér alveg karlinn, hann og Sigvaldi töluðu að vísu saman í næstum tvo tíma í gær þegar Sæmi var að lóðsa Sigvalda með loka hjálpina í gegnum síma. En það er allt komið í gott lag núna og allir kátir. Er heima með Benjamín því hann hóstaði svo mikið í nótt, endalaus veikindatíð þessa daganna, dagmamman sagði að það væru öll börnin "hennar" hálfslöpp. Þetta fer nú vonandi allt að líða hjá samt. Sigvaldi fór í morgun og verður í rúmlega tvær vikur í burtu í þetta skipið. Þá kemur hann heim í nokkra daga og er svo farinn að vinna í Færeyjum. Já hann ættlar bara að stinga af úr landi, ég er samt ekkert mjög vond við hann eiginlega bara ekki neitt sko. Ættla að nota tímann núna á meðan Benjamín sefur til þess að læra.
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|